Fotbolti.net
14.07.26 - 21:02
Gylfi Már Þórðarson

Ray Anthony: Við erum að skoða alla möguleika sem eru í boði

Auglýsing
Ray Anthony Jónsson - þjálfari Grindavíkur

Ray Anthony Jónsson - þjálfari Grindavíkur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Grindvíkingar mættu á Vivaldivöllinn á Seltjarnarnesi og fóru með öll þrjú stigin í farteskinu að leik loknum eftir sigur á heimamönnum í Gróttu 1-2. Er þetta fyrsti sigur Grindavíkur síðan í fjórðu umferð Lengjudeildarinnar fyrir tæpum tveimur mánuðum síðan. Ray Anthony Jónssyni þjálfara Grindavíkur var létt í leikslok.
Lestu um leikinn: Grótta 1 - 2 Grindavík
"Já þetta er léttir, við höfum svolítið verið að bíða eftir þessu. Í undanförnum leikjum höfum við ekki náð að loka þeim en við gerðum það í dag. Sóknarleikurinn gekk betur en undanfarið, við erum að bæta hann, við gleymdum því aðeins í síðasta leik og þurftum aðeins að stíga til baka og vinna ennþá meira með varnarleiknum ásamt sóknarleiknum og það virkaði vel í dag. Ég ætla að vona þessi sigur verði vendipunktur á tímabilinu.

Félagaskiptaglugginn er að opna, munu Grindvíkingar styrkja sig í honum?

"Við erum að skoða það, það fer eftir næstu leikjum. Við erum að skoða alla möguleika sem eru í boði. Það er ekkert í hendi" sagði Ray Anthony Jónsson í leikslok.

Allt viðtalið við Ray Anthony má finna í spilaranum hér að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.