Nottingham Forest er ekki hætt á leikmannamarkaðinum í sumar en liðið er nú mjög nálægt því að klófesta miðjumanninn Houssem Aouar frá Lyon í Frakklandi.
Þessi 24 ára gamli leikmaður hefur skorað 40 mörk og lagt upp 35 í 216 leikjum fyrir Lyon en samningur hans við félagið rennur út eftir eitt ár.
Hann hefur mikið verið orðaður burt frá Lyon í sumar en Forest hefur boðið í leikmanninn. Lyon hafnaði tilboði frá Forest en nú er talað um að nýtt og betra tilboð sé komið í Aouar frá Forest.
Arsena hefur lengi haft áhuga á Aouar og þá hefur Real Betis einnig fylgst grannt með kappanum.
Fyrr í dag gengu Emmanuel Dennis og Cheikhou Kouyate til liðsins en alls hafa fjórtán leikmenn komið til Forest í sumar.
Athugasemdir