Fotbolti.net
14.08.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

4. deild: Álftanes skoraði tíu og Hamar átta

Álftanes hefur farið hamförum í 4. deildinni

Álftanes hefur farið hamförum í 4. deildinni

Canon

Mynd: Aðsend

Álftanes og Hamar buðu til veislu í 4. deild karla í gær.
Álftanes slátraði Úlfunum, 10-0, þar sem Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson fór á kostum og skoraði fjögur mörk.

Arian Ari Morina og Markús Pálmi Pálmason skoruðu tvennu hvor og þeir Unnar Ari Hansson og Hlynur Bjarnason komust einnig á blað.

Þetta var fjórði sigur Álftaness í röð og trónir liðið á toppnum með 39 stig.

Aðeins Hamar virðist geta veitt Álftanesi samkeppni um titilinn en liðið pakkaði Vængjum Júpiters saman, 8-0.

Brynjólfur Þór Eyþórsson og Óliver Þorkelsson skoruðu þrennu hvor. Guido Rancez og Genaro Peresutti gerðu hin tvö mörkin.

Þrír markahæstu leikmenn deildarinnar leika allir með Hamri. Rancez er efstur með 20 mörk, Rodrigo Depetris hefur skorað 16 og Brynjólfur 15.

Hamar er í öðru sæti með 37 stig, tveimur stigum á eftir Álftanesi.

Álftanes 10 - 0 Úlfarnir
1-0 Arian Ari Morina ('11 )
2-0 Unnar Ari Hansson ('16 )
3-0 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('35, víti )
4-0 Arian Ari Morina ('39 )
5-0 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('65 )
6-0 Hlynur Bjarnason ('70 )
7-0 Markús Pálmi Pálmason ('73 )
8-0 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('82 )
9-0 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('84 )
10-0 Markús Pálmi Pálmason ('89 )

Hamar 8 - 0 Vængir Júpiters
1-0 Óliver Þorkelsson ('6 )
2-0 Brynjólfur Þór Eyþórsson ('17 )
3-0 Guido Rancez ('33 )
4-0 Óliver Þorkelsson ('53 )
5-0 Brynjólfur Þór Eyþórsson ('55 )
6-0 Genaro Peresutti ('66 )
7-0 Brynjólfur Þór Eyþórsson ('70 )
8-0 Óliver Þorkelsson ('90 )
Óliver Þorkelsson skoraði þrennu fyrir Hamar

Óliver Þorkelsson skoraði þrennu fyrir Hamar

Canon

Mynd: Guðmundur Karl/Sunnlenska.is

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Álftanes17+6348
2Hamar17+5144
3Árborg17+3033
4Elliði17-323
5Vængir Júpiters17-722
6KFR17-1418
7Úlfarnir17-1216
8ÍH17-3614
9Álafoss17-2711
10Hafnir17-4510
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.