Fotbolti.net
14.08.26 - 14:53
Kári Snorrason

Sævar meiddist á ökkla

Á að baki 9 A-landsleiki.

Á að baki 9 A-landsleiki.

Canon

Mynd: EPA

Sævar Atli Magnússon er að glíma við ökklameiðsli og hefur verið frá æfingum hjá Brann. Hann fékk högg á ökklann í fyrsta leik sínum í 263 daga eftir að hafa glímt við erfið meiðsli.

Eirik Horneland, þjálfari Brann, sagði í samtali við Bergens Avisen að Sævar væri enn að reyna að hrista ökklameiðslin af sér en það gengi erfiðlega.
Sævar var því ekki með á æfingu Brann í dag. Hann hefur þó komið við sögu í öllum sex leikjum liðsins frá leiknum gegn Molde.

Sævar meiddist í landsleik gegn Frakklandi í október og var endurkoman þyrnum stráð. Hann gekkst undir aðgerð í kjölfar meiðslana en þurfti síðan að gangast undir þrjár aðgerðir til viðbótar áður en hann gat snúið aftur á völlinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.