14.09.16 - 12:42
Jóhann Ingi Hafþórsson
Dagný: Í lagi að vera í tíu daga og fara svo í sólina
Auglýsing

Dagný Brynjarsdóttir er spennt fyrir komandi verkefnum með landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dagný Brynjarsdóttir er spennt fyrir komandi verkefnum með landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég reiknaði með að það væri aðeins betur veður hérna en þetta er típískt í september, það er allt í lagi að vera hérna í tíu daga og fara aftur heim í sólina,\" sagði Dagný Brynjarsdóttir, miðjumaður landsliðsins en hún leikur með Portland Thorns í Bandaríkjunum þar sem lífið og veðrið leikur við hana.
Hún mun fara fyrir miðju íslenska liðsins gegn Slóvenum á föstudag og svo Skotum á þriðjudaginn. Íslenska liðið vann það slóvenska, 6-0 á útivelli en Dagný segir þær geta verið hættulegar.
Hún mun fara fyrir miðju íslenska liðsins gegn Slóvenum á föstudag og svo Skotum á þriðjudaginn. Íslenska liðið vann það slóvenska, 6-0 á útivelli en Dagný segir þær geta verið hættulegar.
„Sá leikur fór 6-0 en það segir ekki endilega til um styrkleika þeirra. Við spiluðum rosalega vel varnarlega og sóknarlega og við þurfum að spila þannig ef við ætlum að vinna þær aftur.\"
Að sama skapi segir hún íslenska liðið vera betra og eiga að vinna það slóvenska, á eðlilegum degi.
„Við erum með sterkari einstaklinga og leikmenn og við krefjumst þess að sjálfum okkur að taka þrjú stig.\"
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.