Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   lau 14. september 2019 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Rúnar Már mætir uppáhaldsliðinu á Old Trafford
Mynd: Astana
Rúnar Már Sigurjónsson, landsliðsmaður og leikmaður FC Astana í Kasakstan, leikur á Old Trafford næsta fimmtudag.

Rúnar Már og félagar heimsækja þar Manchester United í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Rúnar er eflaust gríðarlega spenntur fyrir þessari viðureign enda hefur hann verið harður stuðningsmaður Rauðu djöflanna alla sína tíð.

Miðjumaðurinn kröftugi fær kjörið tækifæri til að sýna hvað í honum býr á stóra sviðinu.

Astana byrjaði í undankeppni Meistaradeildarinnar en tapaði fyrir CFR Cluj og datt því niður í undankeppni Evrópudeildarinnar. Síðan þá hefur liðinu tekist að slá BATE Borisov, Valletta og Santa Colomna úr leik á leið sinni í riðlakeppnina.


Athugasemdir
banner
banner
banner