14.10.26 - 19:06
Brynjar Ingi Erluson
Segir leikmann Viking hafa hagað sér eins og fífl

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Max Eberl, yfirmaður íþróttamála hjá Bayern München, var allt annað en sáttur við hegðun norska framherjans Zlatko Tripic í 3-3 jafntefli liðsins gegn Viking í Meistaradeildinni í gær.

TENGT EFNI
„Ég hef beðið í 34 ár eftir þessu"
Tripic reyndist Bæjurum erfiður ljár í þúfu og fór mikið í taugarnar á leikmönnum Bayern. Hann var sífellt að pirra þá og lét ýmis leikatriði fylgja með.
Seint í síðari hálfleik tókst honum að fiska Michael Olise af velli. Olise kastaði þá boltanum í höfuð Tripic og þótt kastið væri ekki fast lét króatíski Norðmaðurinn sig falla til jarðar. Olise fékk sitt annað gula spjald og var rekinn af velli.
Eberl var afar ósáttur við Tripic eftir leikinn og sparaði ekki stóru orðin.
„Hann hagaði sér eins og fáviti á vellinum. Hann vildi vinna leikinn og við leyfðum honum að komast í hausinn á okkur. Hann fékk sínu framgengt,“ sagði Eberl.
Tripic viðurkenndi að hafa farið aðeins yfir strikið en virtist þó ekki sjá sérstaklega eftir neinu.
„Okkur tókst að pirra hann (Olise) aðeins. Flestir bölvuðu mér í sand og ösku og ég þorði ekki einu sinni að fara inn í búningsklefa Bayern til að skiptast á treyjum,“ sagði Tripic enn fremur.