Spænski varnarmaðurinn Nacho Heras mun ekki leika áfram með Leikni Reykjavík.
Hann og Leiknir komust ekki að samkomulagi, en Nacho hefur áhuga á því að spila áfram á Íslandi.
Nacho var gríðarlega flottur með Leikni síðasta sumar. Hann lék 19 leiki í Inkasso-deildinni, skoraði þrjú mörk og var valinn í lið ársins í Inkasso-deildinni hér á Fótbolta.net. Þjálfarar og fyrirliðar sáu um valið.
Hann kom til Leiknis frá Víkingi Ólafsvík fyrir síðasta tímabil eftir að hafa leikið í tvö tímbil með Ólsurum þar áður.
Leiknir hafnaði í þriðja sæti Inkasso-deildarinnar síðasta sumar.
Athugasemdir