Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 14. desember 2019 16:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Sveinn Aron spilaði allan leikinn - Brescia á sigurbraut
Sveinn í leik með Brescia.
Sveinn í leik með Brescia.
Mynd: Getty Images
Sveinn Aron Guðjohnsen lék allan leikinn fyrir Spezia er liðið gerði markalaust jafntefli gegn Venice í Feneyjum í ítölsku B-deildinni.

Spezia lék manni færri frá 66. mínútu eftir að Giulio Maggiore fékk sitt annað gula spjald.

Sveinn Aron og hans félagar eru í 13. sæti B-deildarinnar með 20 stig.

Einn leikur er búinn í ítölsku A-deildinni í dag. Það var nýliðaslagur þegar Mario Balotelli og félagar í Brescia tóku á móti Lecce. Balotelli var í byrjunarliði Brescia og lék allan leikinn.

Balotelli skoraði ekki, liðsfélagar hans sáu um það. Brescia vann góðan 3-0 sigur og er núna búið að vinna tvo leiki í röð. Brescia er komið upp í 17. sætið. Lecce er í 16. sæti með tveimur stigum meira, eða 15 stig.

Brescia 3 - 0 Lecce
1-0 Jhon Chancellor ('32 )
2-0 Ernesto Torregrossa ('44 )
3-0 Nikolas Spalek ('61 )
Athugasemdir
banner
banner