Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 14. desember 2019 15:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp: Ekki fallegasti leikurinn en ég er meira en sáttur
Jurgen Klopp.
Jurgen Klopp.
Mynd: Getty Images
„Þetta var ekki fallegasti leikurinn en ég er meira en sáttur við það," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, eftir 2-0 sigur á Watford í ensku úrvalsdeildinni í dag.

„Á þessum tímapunkti þarftu að sýna seiglu og ég tel okkur hafa gert það í dag. Við erum að spila svo marga leiki og við erum ánægðir með þetta."

„Watford fékk sín færi í leiknum en við nýttum okkar færi. Við hefðum getað gert leikinn auðveldari fyrir okkur, en það tekur á að vera alltaf að stjórna leikjum."

Georginio Wijnaldum fór meiddur af velli. „Okkar aðalvandamál er að missa leikmenn. Það er allt í lagi að spila alla þessa leiki, en það hjálpar ekki að missa leikmenn."

Liverpool hefur unnið alla leiki nema einn í ensku úrvalsdeildinni í vetur og er á toppnum. Eini leikurinn sem Liverpool bar ekki sigur úr býtum í, var gegn Manchester United þar sem leikar enduðu 1-1.

Klopp verður hjá Liverpool til 2024, en hann skrifaði undir nýjan samning í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner