Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 15. janúar 2022 08:00
Victor Pálsson
Mun aldrei gleyma faðmlaginu eftir leikinn
Mynd: EPA
Hinn 19 ára gamli Nico Williams reyndist hetja Athletic Bilbao í undanúrslitum gegn Atletico Madrid Í spænska Ofurbikarnum.

Athletic tryggði sér sæti í úrslitum keppninnar með 2-1 sigri þar sem Williams skoraði annað markið á 81. mínútu.

Williams er bróðir Inaki Williams, leikmanns Athletic, og hefur spilað 23 deildarleiki en án þess að skora mark.

Williams upplifði tilfinningaþrungna stund með þessu sigurmarki og ræddi á meðal annars um móður sína eftir lokaflautið.

„Þetta er mjög tilfinningarík stund. Ég vona að ég geti upplifað mun fleiri svona augnablik," sagði Willams.

„Ég er svo ánægður að geta upplifað þetta með bróður mínum og móður sem kom og faðmaði okkur eftir leikinn."

„Hún sagði að ég ætti þetta skilið. Þegar ég faðmaði bróður minn í fagnaðarlátunum, það er augnablik sem ég mun aldrei gleyma."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner