Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 15. janúar 2022 17:27
Brynjar Ingi Erluson
Tómas Bent framlengir við ÍBV
Tómas Bent framlengdi samning sinn í dag
Tómas Bent framlengdi samning sinn í dag
Mynd: Knattspyrnudeild ÍBV
Tómas Bent Magnússon gerði í dag nýjan tveggja ára samning við ÍBV. Þetta kemur fram í tilkynningu frá knattspyrnudeild félagsins.

Tómas er fæddur árið 2002 og steig sín fyrstu skref með meistaraflokki Eyjamanna árið 2019.

Hann lék þá tvo leiki í Pepsi Max-deildinni en hefur spilað stærra hlutverk með liðinu í Lengjudeildinni síðustu tvö tímabil.

Tómas á nú 37 leiki og 4 mörk að baki fyrir liðið í deild- og bikar en hann hjálpaði liðinu að komast upp í efstu deild á síðasta tímabili.

Þessi öflugi leikmaður gerði tveggja ára samning við Eyjamenn í dag sem undirbúa sig af kappi fyrir komandi leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner