Fotbolti.net
15.02.20 - 16:26
Ívan Guðjón Baldursson

Þýskaland: Leipzig á toppinn - Weghorst með þrennu

Leipzig er á toppnum, í bili.

Leipzig er á toppnum, í bili.

Canon

Mynd: Getty Images

Alfreð Finnbogason lék fyrstu 80 mínúturnar er Augsburg gerði 1-1 jafntefli við Freiburg í þýska boltanum í dag.
Philipp Max kom Augsburg yfir fyrir leikhlé en Janik Haberer jafnaði í upphafi síðari hálfleiks.

Augsburg er tíu stigum frá fallsvæðinu eftir jafnteflið, á meðan Freiburg er tveimur stigum frá Evrópusæti.

Augsburg 1 - 1 Freiburg
1-0 Philipp Max ('38 )
1-1 Janik Haberer ('51 )

RB Leipzig endurheimti toppsæti deildarinnar með öruggum sigri á Werder Bremen á meðan Bayer Leverkusen hafði betur í hádramatískum leik gegn Union Berlin.

RB Leipzig 3 - 0 Werder Bremen
1-0 Lukas Klostermann ('17 )
2-0 Patrik Schick ('39 )
3-0 Nordi Mukiele ('46 )

Union Berlin 2 - 3 Bayer Leverkusen
1-0 Christian Gentner ('7 )
1-1 Kai Havertz ('22 )
1-2 Moussa Diaby ('83 )
2-2 Marius Bulter ('87)
2-3 Karim Bellarabi ('94)

Wout Weghorst var þá hetja Wolfsburg er hann skoraði þrennu á útivelli gegn Hoffenheim. Tvö marka Weghorst komu úr vítaspyrnum.

Hoffenheim 2 - 3 Wolfsburg
0-1 Wout Weghorst ('18 , víti)
1-1 Christoph Baumgartner ('45 )
1-2 Wout Weghorst ('52 , víti)
2-2 Andrej Kramaric ('60 , víti)
2-3 Wout Weghorst ('71 )

Samúel Kári Friðjónsson var ónotaður varamaður er botnlið Paderborn tapaði fyrir Hertha Berlin. Samúel Kári og félagar eru fimm stigum frá öruggu sæti.

Paderborn 1 - 2 Hertha Berlin
0-1 Dedryck Boyata ('10 )
1-1 Dennis Srbeny ('51 )
1-2 Matheus Cunha ('67)
Weghorst setti þrennu í Hoffenheim.

Weghorst setti þrennu í Hoffenheim.

Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Augsburg000
2Leverkusen000
3Bayern000
4Dortmund000
5Gladbach000
6Frankfurt000
7Elversberg000
8Freiburg000
9Hamburger000
10Hoffenheim000
11Köln000
12Mainz000
13Paderborn000
14RB Leipzig000
15Schalke 04000
16Stuttgart000
17Union Berlin000
18Werder000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.