Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 15. febrúar 2021 14:41
Magnús Már Einarsson
Henderson hlær að sögu um slagsmál Alisson og Robertson
Jordan Henderson.
Jordan Henderson.
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, gerði lítið úr sögusögnum sem hafa verið í gangi þegar hann sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag.

Vangaveltur hafa jafnvel verið í gangi um hvort Jurgen Klopp gæti hætt með Liverpool og að hann sé ekki með stuðning leikmanna.

„Ég held að ég þurfi ekki að tjá mig um einhvern sem situr bakvið lyklaborðið og býr til sögusagnir um stjórann eða búningsklefann," sagði Henderson í dag.

„Ég hafði reyndar gaman að sögunni um að Ali (Alisson) og Robbo (Andrew Robertson) hafi farið að slást! Það er ekkert til í þessum sögum."

Liverpool mætir RB Leipzig í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á morgun en fyrri leikur liðanna fer fram í Búdapest í Ungverjalandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner