Gústi: Hefði átt að fresta leiknum
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan er án stiga í Bestu deildinni eftir tvær umferðir en liðið tapaði 1-0 fyrir FH á frjálsíþróttasvæðinu í Kaplakrika í dag. Stjarnan átti sláarskot og klúðraði víti svo Garðbæingar voru skiljanlega svekktir með niðurstöðuna.
„Tilfinningin er mjög súr, mér fannst við vera með öll tök á leiknum. Fyrri hálfleikurinn var mjög vel spilaður af okkar hálfu. Þetta er svekkjandi," sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Stjörnunnar, eftir leikinn.
Mikið var rætt og ritað um vallaraðstæður á þessum varavelli í Kaplakrikanum.
„Leikmenn reyndu að gera sitt besta og úr því var svolítið skrítinn leikur þar sem dómararnir höfðu í nægu að snúast," sagði Ágúst og er sammála þeirri umræðu að það hefði átt að fresta þessum leik.
Eins og áður sagði er Stjarnan ekki komin á blað.
„Við töluðum um það eftir leikinn að við ætlum að rífa okkur í gang allir saman. Við erum með núll stig og ekkert mark skorað, það er eitthvað sem við ætluðum okkur ekki en svona er staðan og við þurfum að stíga saman á bensíngjöfina."
Jóhann Árni Gunnarsson klúðraði víti í fyrri hálfleik. Hilmar Árni Halldórsson var inni á vellinum en Jóhann er vítaskytta Garðbæinga.
„Hann hefur verið það undanfarið og er það núna. Þetta var ekki gott víti, ég veit ekki hvort völlurinn var eitthvað að trufla hann. Því miður þá skoraði hann ekki en við áttum að vinna leikinn þrátt fyrir þetta vítaklúður."
Sindri markvörður FH virtist vera kominn vel af línunni þegar vítið var tekið.
„Við erum með fjóra dómara á vellinum sem eiga að sinna þessu verkefni," sagði Ágúst sem sá ekki hvort Sindri var kominn af línunni.