PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
Erfitt að finna betri stað til að búa á en skoðar sína möguleika
Glódís afhjúpar hver stal senunni í nýliðavígslunni
Steini: Hennar að sýna að hún sé klár í að leysa þetta
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
   fös 15. maí 2026 21:11
Helgi Inguson
„Einn af þessum fótboltaleikjum þar sem maður hefði viljað tíu mínútur í viðbót"
Þjálfari Vals talaði um að þær hefðu þurft að vera klínískari
Þjálfari Vals talaði um að þær hefðu þurft að vera klínískari
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur er dottið úr leik í Mjólkurbikar kvenna eftir erfitt tap á heimavelli gegn Grindavík/Njarðvík.

„Svekktur að sjálfsögðu, sammála þér erfitt tap. Við ætluðum okkur sigur í dag. Þetta var 50/50 leikur. Mér fannst þetta þess vegna getað fallið báðum megin," sagði Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals.

Lestu um leikinn: Valur 2 -  3 Grindavík/Njarðvík

Esther Júlía Gustavsdóttir var í marki Vals í dag en hún kom í stað Tinnu Brá Magnúsdóttur. Þegar Matthías var spurður hvers vegna hann gerði þessa breytingu hafði hann þetta að segja:

„Bara samkeppni. Þær eru báðar að æfa mjög vel. Esther er búin að standa sig mjög vel á æfingum líka. Mér fannst hún eigi skilið sæti í dag."

Matthías hafði nokkur orð að segja um pressu liðsins og lausnir Grindavíkur/Njarðvíkur á henni.

„Mér fannst þær finna lausnir á þessu tímabili sem fyrsta markið kemur. Við vorum aðeins of seinar í pressu og um leið og maður er orðinn sekúndu of seinn þá er ekki góð vörn að spila pressu. Hún gekk svo sem alveg vel, mér fannst þær ekki endilega vera að skapa mikið. Við unnum samt boltann nokkrum sinnum á svæðum þar sem við vildum vinna hann en það kom ekkert út úr því."

Það lá mark í loftinu undir lok leiksins. „Þetta er einn af þessum fótboltaleikjum þar sem maður hefði viljað tíu mínútur í viðbót. Það er bara ekki svoleiðis því miður," bætti Matthías við að lokum.
Slapp
banner
banner