Fotbolti.net
15.06.26 - 23:13
Sigurjón Árni Torfason

Óli Stefán: Vil fara að halda hreinu

Auglýsing
Óli Stefán var sáttur eftir 3-1 sigur sinna manna í dag

Óli Stefán var sáttur eftir 3-1 sigur sinna manna í dag

Canon

Mynd: Selfoss

Selfoss tók á móti Þrótti Vogum á JÁVERK-vellinum á Selfossi í kvöld. Leiknum lauk með 3–1 sigri heimamanna. Selfyssingar sitja nú í 2. sæti deildarinnar með 15 stig.
Selfoss komust fljótlega yfir í leiknum eftir sjálfsmark frá Jóni Veigari, leikmanni gestana. Heimamenn bættu síðan við tveimur mörkum til viðbótar, en bæði þeirra komu úr vítaspyrnum.

„Ég er bara gríðarlega ánægður, bara sáttur. Þetta var erfiður leikur bara stál í stál og svona fannst mér, fannst við ekki almennilega vera í taktinum en einhvern veginn vorum við samt þéttir og manni leið samt alltaf þannig að við værum með þetta svona undir einhverju kontróli. En ég verð nú bara að gefa Þrótturunum bara hrós, þeir voru bara mjög flottir í dag og erfiðir við að eiga." Sagði Óli Stefán við fréttamann Fótbolti.net eftir leik.


Þrátt fyrir sigurinn var Óli ekki sáttur við að hans menn skyldu fá á sig mark undir lok leiks, þegar Þróttur minnkaði muninn.


„Ég er bara ósáttur við, ég vill fara að halda hreinu. Ég hef nú alltaf haft það, mín lið hafa nú alveg verið hérna öflug varnarlega og hérna, ekki það að ég sé alveg rosalegar framfarir í okkar varnarleik og við erum orðin miklu þéttari og opnum okkur minna og þetta er allt á réttri leið, en ég hefði alveg viljað halda hreinu en hérna, ég tek þessu alveg."



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.