Fotbolti.net
15.06.26 - 21:35
Brynjar Ingi Erluson

2. deild: Jón Daði og Viðar Örn báðir á skotskónum

Viðar Örn og Jón Daði voru báðir á skotskónum fyrir Selfoss

Viðar Örn og Jón Daði voru báðir á skotskónum fyrir Selfoss

Canon

Mynd: Selfoss

Selfyssingar unnu frábæran 3-1 sigur á Þrótti Vogum í 2. deild karla í kvöld.
Jón Daði Böðvarsson og Viðar Örn Kjartansson voru báðir á skotskónum fyrir uppeldisfélagið, en fyrsta mark leiksins var hins vegar sjálfsmark.

Elías Karl Heiðarsson átti fyrirgjöf sem Jón Veigar Kristjánsson stýrði í eigið net með klaufalegum hætti.

Viðar Örn tvöfaldaði forystuna með marki úr vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks. Aron Lucas Vokes var tekinn niður í teignum og Viðar var öryggið uppmálað á punktinum. Þetta var fimmta deildarmark hans á tímabilinu.

Franz Bergmann Heimisson klóraði í bakkann fyrir Vogamenn. Anton Breki Óskarsson átti sendingu á Franz, sem minnkaði muninn, áður en Jón Daði gulltryggði sigur Selfyssinga með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

Kostiantyn Pikul, leikmaður Vogamanna, sá rauða spjaldið stuttu síðar.

Góður sigur Selfyssinga, sem eru komnir upp í annað sætið með 15 stig, en Vogamenn eru í næstneðsta sæti með 7 stig.

Fjölnir og Kári gerðu 2-2 jafntefli á Extra-vellinum í Grafarvogi.

Fyrri hálfleikurinn var ekki upp á marga fiska og fremur rólegur, en það færðist fjör í leikinn í þeim síðari. Árni Salvar Heimisson braut ísinn strax í upphafi síðari hálfleiks með skalla eftir hornspyrnu.

Bjarni Þór Hafstein og Egill Otti Vilhjálmsson sáu um endurkomu Fjölnis. Bjarni skoraði tvö mörk á þremur mínútum og var Egill arkitektinn með tveimur laglegum stoðsendingum. Afgreiðslurnar voru sömuleiðis flottar.

Níu mínútum síðar jafnaði Jón Þór Finnbogason fyrir Kára, sem náði að slípa saman góða sókn. Boltinn endaði á fjærstönginni þar sem Jón var mættur og skilaði honum í netið.

Patryk Hryniewicki átti hörkuskalla undir lokin sem fór rétt yfir mark Kára og þá var Jóhannes Breki Harðarson ekki langt frá því að gera sigurmarkið fyrir Kára þegar hann reyndi skot utan teigs sem fór í boga og í þverslána.

Stórskemmtilegur síðari hálfleikur en 2-2 jafntefli varð niðurstaðan. Kári er í 2. sæti með 13 stig á meðan Fjölnir er í 3. sæti með jafnmörg stig en slakari markatölu.

Fjölnir 2 - 2 Kári
0-1 Árni Salvar Heimisson ('46 )
1-1 Bjarni Þór Hafstein ('49 )
2-1 Bjarni Þór Hafstein ('52 )
2-2 Jón Þór Finnbogason ('61 )
Lestu um leikinn

Selfoss 3 - 1 Þróttur V.
1-0 Jón Veigar Kristjánsson ('6 , sjálfsmark)
2-0 Viðar Örn Kjartansson ('48 , víti)
2-1 Franz Bergmann Heimisson ('90 )
3-1 Jón Daði Böðvarsson ('92 , víti)
Rautt spjald: Kostiantyn Pikul, Þróttur V. ('92) Lestu um leikinn
Bjarni Þór Hafstein gerði bæði mörk Fjölnis

Bjarni Þór Hafstein gerði bæði mörk Fjölnis

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar8+1016
2Selfoss8+415
3Kári8+913
4Fjölnir8+513
5Dalvík/Reynir8-113
6KFG8-812
7Kormákur/Hvöt8+811
8Víkingur Ó.8-411
9Hvíti riddarinn8010
10KFA8+39
11Þróttur V.8-57
12Magni8-214
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.