Fotbolti.net
16.06.26 - 01:45
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu markið: Vatnspásan gerði Írönum gott

Rezaeian (t.v.) skoraði markið

Rezaeian (t.v.) skoraði markið

Canon

Mynd: EPA

Íran var rétt í þessu að jafna metin gegn Nýja-Sjálandi og er staðan því 1-1. Íranir komu gríðarlega sterkir inn á völlinn eftir fyrstu vatnspásu leiksins.
Sjáðu markið: Stórskemmtilegt samspil hjá Nýsjálendingum
TENGT EFNI

Sjáðu markið: Stórskemmtilegt samspil hjá Nýsjálendingum

Vatnspásurnar hafa verið mikið gagnrýndar á mótinu. Þær hafa drepið hraða leiksins og breytast leikirnir mikið eftir þær.

Eitt af dæmunum er vatnspásan í leik Írans og Nýja-Sjálands.

Það voru Nýsjálendingar sem komust yfir á 7. mínútu leiksins, en Íran hafði verið í smá basli, þó Mehdi Taremi hafi átt öfluga tilraun sem hafnaði í stönginni.

Eftir vatnspásuna voru þeir til alls líklegir og farnir að hóta marki Nýsjálendinga. Á 32. mínútu kom síðan jöfnunarmarkið er hægri bakvörðurinn Ramin Rezaeian kom boltanum á samherja og þaðan inn á Sahriyar Moghanlou sem ætlaði að reyna skotið, en missti boltann frá sér.

Rezaeian kláraði hlaup sitt inn í teiginn og hann uppskar eftir því, en hann náði til boltans og potaði honum skemmtilega framhjá Max Crocombe í markinu.

Hægt er að sjá það hér fyrir neðan.

Sjáðu markið
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.