Fotbolti.net
16.06.26 - 01:20
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu markið: Stórskemmtilegt samspil hjá Nýsjálendingum

Elijah Just skoraði markið eftir stoðsendingu frá Chris Wood

Elijah Just skoraði markið eftir stoðsendingu frá Chris Wood

Canon

Mynd: EPA

Nýja-Sjáland var að skora sitt fyrsta mark á heimsmeistaramóti í sextán ár er Elijah Just skoraði eftir stórkostlegt samspil og er staðan 1-0 gegn Íran.
Byrjunarlið Írans og Nýja-Sjálands: Öflugir framherjar hjá báðum þjóðum
TENGT EFNI

Byrjunarlið Írans og Nýja-Sjálands: Öflugir framherjar hjá báðum þjóðum

Nýja-Sjáland tapaði báðum leikjum sínum í undirbúningi fyrir HM og hafa ekki spilað á heimsmeistaramóti síðan í Suður-Afríku árið 2010.

Þeir fengu draumabyrjun á 7. mínútu. Langur bolti kom fram á Chris Wood sem tók við honum, kom honum á Sarpreet Singh sem sendi hann aftur inn fyrir á Wood.

Hann lagði boltann með brjóstkassanum fyrir Just sem skoraði með flottu skoti.

Laglegt samspil en markið má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hér
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.