Fotbolti.net
16.06.26 - 00:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dressmann

Víðir Sig spáir í leiki dagsins á HM

Víðir Sigurðsson.

Víðir Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net

Það eru þrír leikir á HM næsta sólarhringinn. Það er meðal annars spilar í riðlinum sem flestir hafa kallað dauðariðilinn.

Víðir Sigurðsson spáir í leikina að þessu sinni. Víðir, sem er einn virtasti íþróttafréttamaður landsins, mun ganga til liðs við Fótbolti.net þann 1. júlí næstkomandi og skrifa pistla um íslenska boltann fyrir síðuna.
Víðir Sig til liðs við Fótbolti.net (Staðfest)
TENGT EFNI

Víðir Sig til liðs við Fótbolti.net (Staðfest)

Íran 2 - 1 Nýja-Sjáland (01:00)
Aðstæðurnar eru vægast sagt einkennilegar fyrir leikmenn Íran sem eru staddir í landi sem þeirra þjóð hefur átt í stríðsátökum við. En þeir eru með gott lið, þjappa sér saman og vinna verðskuldaðan sigur.

Frakkland 1 - 1 Senegal (19:00)
Frakkar eru líklegir til afreka á mótinu en fara rólega af stað og lenda í vandræðum gegn harðskeyttu liði gömlu nýlendunnar sinnar. Mbappé bjargar málunum og jafnar seint í leiknum.

Írak 0 - 2 Noregur (22:00)
Norðmenn fóru með himinskautum í undankeppninni og fylgja því eftir með góðri byrjun á HM. Írakar eru ágætis lið en þeir ráða ekki við Erling Haaland sem skorar tvívegis.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Frakkar mæta Senegal í mjög áhugaverðum leik.

Frakkar mæta Senegal í mjög áhugaverðum leik.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.