Fotbolti.net
16.06.26 - 00:24
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarlið Írans og Nýja-Sjálands: Öflugir framherjar hjá báðum þjóðum

Chris Wood er framherji Nýja-Sjálands

Chris Wood er framherji Nýja-Sjálands

Canon

Mynd: EPA

Íran og Nýja-Sjáland eigast við í G-riðli HM á SoFI-leikvanginum í Inglewood í Kaliforníu klukkan 01:00. Leikurinn er í beinni textalýsingu á Fótbolta.net og í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV.
Alireza Jahanbakhsh, stærsta stjarna Írans, er á bekknum í dag. Þeir eru þó með marga aðra góða leikmenn eins og Mehdi Taremi og Saman Ghoddos sem lék með Brentford. Þeir tveir eru í byrjunarliðinu.

Chris Wood, framherji Nottingham Forest, er aðalmaður Nýja-Sjálands. Hann er í fremstu víglínu í leikkerfinu 4-2-3-1 á meðan Íran spilar 5-3-2.

Margir Íranir búa í Los Angeles og er ágætlega mætt á leikvanginn.

Bandaríkin og Íran náðu á sunnudag bráðabirgðasamkomulagi sem gæti orðið grunnur að frekari viðræðum um lok tæplega fjögurra mánaða stríðs.

Íran: Beiranvand; Yousefi, Rezaeian, Khalilzadeh, Nemati, Mohammadi; Mohebi, Ezatolahi, Ghoddos; Taremi, Moghanlou.

Nýja-Sjáland: Crocombe; Payne, Boxall, Surman, Cacace; Bell, Stamenic; Just, Singh, McCowatt; Wood.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.