Fotbolti.net
16.06.26 - 00:14
Brynjar Ingi Erluson

HM: Markvörður Sádi-Arabíu stal senunni

Al Amri skorar mark Sádi-Arabíu

Al Amri skorar mark Sádi-Arabíu

Canon

Mynd: EPA

Sádi-Arabía 1 - 1 Úrúgvæ
1-0 Abdulelah Al-Amri ('41 )
1-1 Maxi Araujo ('80 )
Sádi-Arabía og Úrúgvæ skildu jöfn, 1-1, í H-riðli heimsmeistaramótsins á Hard Rock-leikvanginum í Miami í Bandaríkjunum í kvöld. Sádarnir geta þakkað markverðinum Mohammed Al Owais fyrir stigið.

Leikurinn byrjaði fremur rólega og liðin gáfu fá færi á sér, en Maxi Araujo fékk líklega besta færið í byrjun þegar hann átti fínt skot sem Al Owais varði. Sá átti heldur betur eftir að koma við sögu í leiknum.

Sádarnir komu sterkir inn í leikinn undir lok fyrri hálfleiks. Abdulelah Al-Amri hótaði marki af stuttu færi sem Fernando Muslera varði frábærlega, áður en hann kom Sádunum yfir skömmu síðar eftir hornspyrnu.

Boltanum var skallað í átt að marki og Muslera varði út á Al-Amri, sem var snöggur að átta sig og potaði honum framhjá markverðinum og í netið.

Nokkrum mínútum síðar gat Federico Vinas jafnað metin en Al Owais varði frá honum. Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir Sádi-Arabíu, sem átti í vök að verjast í þeim síðari.

Aftur sá Al Owais við Vinas í byrjun síðari hálfleiks og þá átti Vinas enn einn skallann sem fór framhjá markinu skömmu síðar.

Hálftíma fyrir leikslok komst Manuel Ugarte nálægt því að jafna þegar hann lét vaða rétt fyrir utan teig, en Al Owais náði að setja fingurgómana í boltann og þaðan fór hann í stöngina.

Markvörðurinn hélt áfram að verja eins og berserkur. Næst varði hann aukaspyrnu frá Federico Valverde.

Vatnspásan gerði Sádunum gott enda voru þeir í nauðvörn. Þeir komust betur inn í leikinn eftir hana en náðu þó ekki að halda út því tíu mínútum fyrir leikslok jöfnuðu Úrúgvæar, og það verðskuldað.

Vinas átti aftur skalla að marki sem Al Owais varði út á Araujo, sem skaut föstu skoti í fyrstu framhjá markverðinum.

Á síðustu mínútum leiksins reyndu Úrúgvæar hvað þeir gátu til að gera sigurmarkið. Al Owais varði tilraun Valverde áður en Sebastian Caceres átti fastan skalla framhjá eftir hornspyrnu.

Endalausar tilraunir Úrúgvæa báru ekki árangur og lauk leiknum með 1-1 jafntefli. Al Owais var algjör hetja Sáda með níu vörslur sem eru flestur vörslurnar í einum leik á þessu móti. Hann landaði þessu stigi í kvöld, en Úrúgvæarnir eru eflaust brjálaðir að hafa gengið frá þessum leik.

Úrúgvæ: Muslera (M), Varela, Caceres, Olivera, Vina (Sanabria '46), Ugarte (De la Cruz '72), Bentancur, Valverde, Vinas (Aguirre '90), Araujo (Rodriguez '81), Nunez (Canobbio '46).

Sádi-Arabía: Al Owais (M), Abdulhamid (Lajami '90 ), Al Amri, Tambakti, Al Harbi (Al Hamdan '90), Abu Al Shamat (Boushal '81), Kanno, Al Khaibari, Al Dawsari, Al Buraikan (Hejji '90), Al Juwayr (Al Dawsari '63)
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Manuel Ugarte í leiknum

Manuel Ugarte í leiknum

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.