Fotbolti.net
15.06.26 - 21:04
Daníel Smári Magnússon

Haddi: Skorum fjögur lögleg mörk

Auglýsing
Hallgrímur sá margt jákvætt í dag, en viðurkenndi fúslega að það væri alltof mikið að fá á sig fjögur mörk á heimavelli.

Hallgrímur sá margt jákvætt í dag, en viðurkenndi fúslega að það væri alltof mikið að fá á sig fjögur mörk á heimavelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við erum mjög svekktir. Okkur fannst við geta fengið meira úr þessum leik. Við gerðum margt gott, skorum fjögur lögleg mörk, þó að það séu bara þrjú sem að fá að standa og ákváðum að fara á þá. En að sama skapi, þó að það sé margt gott að þá er of mikið að fá á sig fjögur mörk á heimavelli,'' sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, eftir 3-4 tap gegn Fram í frábærum leik í Bestu-deild karla í kvöld. 

Stórt atvik á sér stað í fyrri hálfleik þegar að mark er dæmt af Birgi Baldvinssyni. Hvernig horfði atvikið við Hallgrími?

„Já, ég er búinn að sjá þetta á myndbandi eftir leikinn. Ég bara veit það ekki. Ég held að hann giski. Það er enginn KA maður nálægt honum, mér finnst hann ekki einu sinni rekast í eigin mann en bara endilega kíkið á þetta. Þetta er risa móment í leiknum, við erum komnir til baka og komnir yfir. Þetta er bara risa móment sem að ég, því miður, skil ekki.''
Líkt og gegn KR, þá lenda KA menn í brekku og þurfa að elta leikinn. Það getur reynst mikil orkusuga og eitthvað sem að snarlega þarf að kippa í liðinn.

„Já, við lendum undir. Mark eftir horn sem að virkaði hálf klaufalegt, einhvernveginn lak inn. En það getur gerst og svo komumst við yfir en mér fannst við sýna gott hugarfar og mér fannst við skapa fínt - en það er bara of mikið að fá á sig fjögur mörk á heimavelli þótt það hefði átt að duga til jafnteflis í dag, að þá er það ekki það sem við viljum. Við vorum búnir að fá á okkur næstfæst mörk í deildinni, en nú erum við búnir að fá fimm og fjögur mörk á okkur. Þannig að við þurfum að skoða það. Ég er virkilega ánægður með hugarfarið og ánægður með að skora þrjú og svo fjögur mörk í síðustu tveimur leikjum. Það er jákvætt og við höldum bara ótrauðir áfram. Mér finnst við líta betur og betur út og það boðar eitthvað gott. Við ætlum að halda áfram að bæta frammistöðuna, fá aðeins fleiri stig á töfluna og koma okkur í topp 6,'' sagði Hallgrímur Jónasson.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Haddi: Skorum fjögur lögleg mörk
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.