Keflvíkingar buðu í annan leikmann hjá grönnunum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net boðið tvívegis í Braga Karl Bjarkason (2002) leikmann Njarðvíkur. Samkvæmt öðrum heimildum mætti flokka tilboðin sem gríntilboð, upphæðirnar hafi verið svo lágar.
Bragi Karl hefur skorað fimm mörk á tímabilinu og fjögur af þeim hafa komið í fjórum síðustu leikjum. Einungis Dominik Radic hjá HK hefur skorað fleiri mörk í Lengjudeildinni á tímabilinu. Bragi Karl er uppalinn í ÍR en var keyptur í Njarðvík frá FH í vetur.

Fótbolti.net fjallaði um það í vetur að Keflavík reyndi að kaupa Freystein Inga Guðnason (2007) af Njarðvík en án árangurs. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net reyndi Keflavík oftar en einu sinni við Freystein í vetur.
Bæði Bragi Karl og Freysteinn spila á kantinum. Njarðvík ætlar sér upp úr Lengjudeildinni en grannarnir eru nýliðar í Bestu deildinni og sitja í 7. sæti sem stendur.