Fotbolti.net
15.07.26 - 19:51
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deild kvenna: ÍBV hafði betur gegn Val

Allison Lowrey

Allison Lowrey

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
ÍBV 2 - 1 Valur
1-0 Fridrikka Marie Clementsen ('12 )
2-0 Allison Grace Lowrey ('17 )
2-1 Arnfríður Auður Arnarsdóttir ('90 )
Lestu um leikinn
ÍBV vann góðan sigur á Val í Bestu deild kvenna í kvöld. Eyjakonur komust yfir þegar Fridrikka Marie Clementsen skoraði. Boltinn barst til hennar eftir að Olga Sevcova átti skot í varnarmann.

Allison Lowrey tvöfaldaði forystu Eyjakvenna stuttu síðar. Olga átti frábæra sendingu inn fyrir vörnina á Allison. Hún átti skot sem fór í stöngina, hún fékk boltann aftur og skoraði.

Allison Clark var nálægt því að skora þriðja mark Eyjakvenna en skaut framhjá úr góðu færi.

Eyjakonur voru með verðskuldaða tveggja marka forystu í hálfleik. Olga komst í gott færi eftir klukkutíma leik en Tinna Brá Magnúsdóttir varði vel frá henni.

Valskonur sóttu í sig veðrið í kjölfarið. Margrét Brynja Kristinsdóttir átti tilraun en skotið rétt framhjá. Hún átti síðan skot fyrir utan teiginn stuttu síðar en boltinn fór í slána og aftur fyrir.

Arnfríður Auður Arnarsdóttir minnkaði muninn fyrir Val undir lokin þegar hún skoraði með glæsilegu skoti vel fyrir utan teig. Nær komust þær ekki og Eyjakonur fóru með sigur af hólmi.

ÍBV er í 4. sæti með 20 stig eftir 11 umferðir en Valur er í 8. sæti með 10 stig, jafn mörg stig og Fram sem er í 9. sæti.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1FH10+1623
2Breiðablik10+1321
3Stjarnan11+921
4ÍBV11020
5Þróttur R.11-313
6Grindavík/Njarðvík10-412
7Valur11-410
8Víkingur R.10-810
9Fram11-1310
10Þór/KA11-69
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.