26.08.26 - 19:25
Brynjar Ingi Erluson
Evrópubikarinn: Breiðablik rúllaði yfir rúmenska liðið

Sunna Rún skoraði þrennu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sunna Rún skoraði þrennu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik 8 - 1 Csikszereda
1-0 Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('6 )
2-0 Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('9 )
3-0 Sunna Rún Sigurðardóttir ('24 )
4-0 Líf Joostdóttir van Bemmel ('26 )
5-0 Kristín Dís Árnadóttir ('42 )
6-0 Sunna Rún Sigurðardóttir ('47 )
7-0 Sunna Rún Sigurðardóttir ('52 )
8-0 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('54 )
8-1 Csilla Balasz ('79 )
Lestu um leikinn

Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks rúlluðu yfir rúmenska liðið Csikszereda, 8-1, í fyrri leik liðanna í Evrópubikarnum á Eikarvellinum í kvöld.
Blikar fengu draumabyrjun en Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir, sem kom frá Stjörnunni á dögunum, skoraði tvö mörk á fyrstu tíu mínútunum. Agla María Albertsdóttir lagði upp fyrra markið með frábærri fyrirgjöf á 6. mínútu. Aðeins þremur mínútum síðar barst boltinn til Úlfu Dísar eftir hornspyrnu og hún þrumaði honum viðstöðulaust í samskeytin.
Sunna Rún Sigurðardóttir gerði þriðja markið eftir fyrirgjöf Edithar Kristínar Kristjánsdóttur. Líf Joostsdóttir van Bemmel náði ekki til boltans en Sunna Rún var mætt á fjærstöngina og skoraði í autt markið. Aðeins tveimur mínútum síðar lagði Sunna upp fyrir Líf sem kom Blikum í 4-0.
Kristín Dís Árnadóttir bætti fimmta markinu við undir lok fyrri hálfleiks. Agla María fann Sunnu Rún eftir hornspyrnu, hún lék á varnarmann og renndi boltanum á Kristínu Dís sem kláraði færið.
Yfirburðir Blika héldu áfram í þeim síðari og skoraði Sunna Rún annað mark sitt strax á 47. mínútu. Karitas Tómasdóttir sendi Hrafnhildi Ásu Halldórsdóttur í gegn og hún lagði boltann fyrir Sunnu sem skoraði. Fimm mínútum síðar fullkomnaði hún þrennuna eftir fyrirgjöf Edithar frá vinstri. Mögnuð frammistaða hjá Sunnu sem lauk leik með þrjú mörk og tvær stoðsendingar.
Hrafnhildur Ása gerði áttunda og síðasta mark Blika skömmu síðar með föstu skoti utan teigs í fjærhornið. Gestirnir klóruðu í bakkann þegar rúmar tíu mínútur voru eftir en skot Csillu Balasz fór af varnarmanni og í boga yfir Herdísi í marki Blika.
Yfirburðasigur Breiðabliks sem er komið með annan fótinn í næstu umferð. Liðin mætast aftur eftir viku en það ætti að vera formsatriði fyrir Blika að klára einvígið.