Fotbolti.net
26.08.26 - 20:06
Elvar Geir Magnússon

Sölvi í Bosníu: Trúum því að við getum snúið stöðunni við

Sölvi Geir Ottesen á hliðarlínunni í fyrri leiknum.

Sölvi Geir Ottesen á hliðarlínunni í fyrri leiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslandsmeistarar Víkings heimsækja Borac Banja Luka til Bosníu klukkan 18:30 á morgun í seinni leik liðanna í umspili Sambandsdeildar Evrópu, þar sem allt er undir.

Víkingar töpuðu fyrri leiknum gegn Borac í Víkinni, 1-3, og þurfa því að eiga stórleik ætli þeir sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar í annað sinn.
Sölvi Geir: Hefur heldur betur sett mark sitt á sögu Víkings
TENGT EFNI

Sölvi Geir: Hefur heldur betur sett mark sitt á sögu Víkings

„Við erum vissulega í erfiðri stöðu en það er samt mikil trú í okkar liði. Það var auðvitað ekki gott að tapa með tveimur mörkum í fyrri leiknum en þannig er staðan og við trúum því að við getum snúið henni við," sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, á fréttamannafundi á Gradski-leikvangium í Banja Luka.

„Við vorum ekki upp á okkar besta í fyrri leiknum. Við hefðum getað spilað af meiri hraða, spilað betur og látið boltann ganga hraðar. Við þurfum að ná fram okkar besta leik á morgun."

„Við erum að spila gegn mjög góðu liði, þeir eru góðir í því sem þeir gera. Í fyrri leiknum voru þeir beinskeyttir og við hefðum getað brugðist betur við í mörkunum sem þeir skoruðu. Það eru ýmis atriði sem við þurfum að laga til að búa til möguleika fyrir okkur í þessum leik."

„Hvað varðar aðstæður þá erum við vanir svona aðstæðum núna. Við höfum spilað tvisvar í Ungverjalandi við álíka aðstæður. Það verður heitt og spilað á náttúrulegu grasi, við munum ekki nota það sem afsökun ef við náum ekki okkar besta fram á morgun."

Viðtöl frá Bosníu:



Sölvi í Bosníu: Trúum því að við getum snúið stöðunni við
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.