Fotbolti.net
15.07.26 - 15:13
Kári Snorrason

Skrítið að spila fyrir annað lið en Breiðablik - „Þarf að vera vilji báðum megin“

Á 149 leiki að baki fyrir Breiðablik samkvæmt Blikar.is.

Á 149 leiki að baki fyrir Breiðablik samkvæmt Blikar.is.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Árni Vilhjálmsson gekk í raðir Stjörnunnar á dögunum. Árni, sem er uppalinn hjá Breiðabliki, hafði spilað í Sádi-Arabíu en var að renna út af samningi.

Þegar ljóst var að Árni væri á heimleið bjuggust flestir við að hann myndi snúa aftur í uppeldisklúbbinn. Hann átti í viðræðum við félagið fyrr í vor sem duttu upp fyrir.

Árni ræddi við Fótbolta.net á dögunum og var spurður hvort það væri skrítið að spila fyrir annað lið hér heima en Breiðablik.
Bara á Íslandi þekktur sem hreinræktuð nía - „Það verður hausverkur fyrir þjálfarann“
TENGT EFNI

Bara á Íslandi þekktur sem hreinræktuð nía - „Það verður hausverkur fyrir þjálfarann“

„Já, ef ég á að vera alveg hreinskilinn. Það er skrítið, hafandi spilað með nokkrum liðum erlendis, að þegar maður kemur heim á bara að vera ein leið. Það hefur verið þannig hjá mér. Á sama tíma þarf að vera vilji fyrir því báðum megin,“ segir Árni og heldur áfram.

„Fyrst var hugsunin að fara beinustu leið þangað (til Breiðabliks). Það var ljóst ansi snemma að það yrði ekki raunin. Þannig ég hætti nú bara að pæla í því. Í dag skiptir það engu, þegar maður er orðinn leikmaður Stjörnunnar er maður þar og það verður gaman að berjast og taka þátt í öllu með þeim.“

Kom á óvart en veltir sér ekki upp úr því
Árni segist hafa átt í samningsviðræðum við Breiðablik þegar vetrarglugginn var enn opinn á Íslandi en þá átti samningur hans í Sádi-Arabíu eftir að renna út. Hann segir ekki hafa átt í nýjum viðræðum við Blika eftir þær fyrri.

Kom það á óvart?
„Já og nei. Ég var ekkert mikið að pæla í því. Það er annað hvort bara af eða á. Ég er ekkert mikið þannig gaur sem ofpælir of mikið. Ég einblíni frekar á það sem er fyrir framan mig. Kom það á óvart? Já, en svo hættir maður að pæla í því.“

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, var spurður í viðtali eftir að Árni gekk í raðir Stjörnunnar hvort Blikar hefðu reynt við hann.

„Við heyrðum í honum og höfum verið í samskiptum við hann. Ég held að honum hafi bara litist best á Stjörnuna, kannski sýndu þeir meiri áhuga,“ sagði Ólafur.

Hægt er að hlusta á viðtalið við Árna í heild sinni í spilaranum hér að neðan og á öllum helstu hlaðvarpsveitum
Genginn í raðir Stjörnunnar.

Genginn í raðir Stjörnunnar.

Canon

Mynd: Stjarnan

„Kom það á óvart? Já, en svo hættir maður að pæla í því.“

„Kom það á óvart? Já, en svo hættir maður að pæla í því.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Held að honum hafi bara litist best á Stjörnuna.“

„Held að honum hafi bara litist best á Stjörnuna.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Árni Vill ræðir heimkomuna - „Þessi geðveiki virðist elta mig“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.