Víkingur leitar að liðsstyrk: „Við erum opin fyrir öllu"

Einar Guðnason, þjálfari Víkings, segir liðið hafa spilað vel fyrstu 72 mínúturnar en hrunið á lokakaflanum gegn Breiðabliki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einar Guðnason, þjálfari Víkings, segir liðið hafa spilað vel fyrstu 72 mínúturnar en hrunið á lokakaflanum gegn Breiðabliki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einar Guðnason, þjálfari Víkings, var svekktur eftir 4-1 tap liðsins gegn Breiðabliki í Bestu deild kvenna í kvöld. Leikurinn var markalaus fram á 73. mínútu en þá kom Breiðablik boltanum í netið. Blikar skoruðu síðan þrjú mörk til viðbótar á skömmum tíma og kláruðu leikinn.
„Þetta er mjög þungt. Mér fannst við vera betri aðilinn á vellinum í 72 mínútur. Þær skora svo á 73. mínútu,“ sagði Einar í samtali við Fótbolta.net eftir leik.
„Við vorum að halda þeim frá markinu okkar með þolinmæði og skipulögðum varnarleik. Við fengum skyndisóknir og góð færi og náðum einnig að halda boltanum vel innan liðsins á köflum.“
„Það er mjög svekkjandi að hafa fengið þetta mark á okkur og að liðið hafi hrunið svona síðustu tuttugu mínúturnar.“
Breiðablik er náttúrulega frábært lið og þær eru á sínum stað af ástæðu.“
„En þetta er líka einbeitingarleysi hjá okkur og það verðum við að taka á okkur.“
Bergdís Sveinsdóttir skoraði mark Víkings undir lok leiksins en Einar hefði frekar viljað sjá liðið halda betra jafnvægi eftir að það lenti undir.
„Við reyndum auðvitað að sækja mörk. Það er einhvern veginn í DNA-inu hjá liðinu en við vorum að gleyma okkur varnarlega síðustu tuttugu mínúturnar. Það er alveg á hreinu.“
„Markmaðurinn hjá þeim varði frábærlega. Ég myndi segja að hún hafi verið maður leiksins fram að mörkunum.“
„Við vorum mjög þéttar á móti þessu frábæra Breiðabliksliði og þær sköpuðu sér ekki neitt að ráði. Þær fengu eitt þröngt færi sem fór fram hjá en það var í raun eina skiptið sem þær opnuðu okkur.“
„Við vorum þolinmóðar, áttum góða uppspilskafla, hættulegar skyndisóknir og fín færi. Það hefði ekkert verið ósanngjarnt ef við hefðum verið komnar yfir þegar þær skoruðu.“
„Við tökum það jákvæða með okkur en þurfum auðvitað að laga lokakaflann.“
Félagaskiptaglugginn opnar á morgun og Einar staðfesti að Víkingur væri að leita að liðsstyrk.
„Við erum að vinna hörðum höndum að því að ná í leikmenn.“
Aðspurður hvort félagið væri sérstaklega að horfa á varnar- eða sóknarmenn vildi Einar ekki gefa of mikið upp.
„Það kemur vonandi bara í ljós. Við erum opin fyrir öllu en þetta skýrist vonandi á næstu dögum.“


