Danski miðjumaðurinn Gustav Dahl fékk í gær leikheimild með Fram og getur því hjálpað til í baráttunni um sæti í efri hluta Bestu deildarinnar.
Dahl er tvítugur miðjumaður sem spilaði síðast með Vendsyssel í dönsku B-deildinni.
Í tilkynningu Fram um komu Dahl kemur fram að miðjumennirnir Tiago og Tryggvi Snær Geirsson séu að glíma við meiðsli og því eru góðar líkur á því Dahl komi beint inn í liðið.
Fram situr í 6. sæti Bestu deildarinnar og á útileik gegn Breiðablik í næstu umferð.

Tilkynning Fram
Fram og Gustav Dahl gera með sér samning út yfirstandandi leiktíð með möguleika á áframhaldandi samstarfi næsta ár.
„Þetta er leikmaður sem okkur bauðst af umboðsmanni sem þekkir vel til í dönsku deildinni. Hann er ungur og alveg tilbúinn og mjög áhugasamur að koma. Hann er miðjumaður sem getur bæði spilað sexu og áttu og er tæknilega góður og mjög efnilegur leikmaður. Við erum fáliðaðir eins og staðan er núna eftir að Már fór og Tiago og Tryggvi eru meiddir og því er þetta frábært tækifæri fyrir okkur," sagði Rúnar Kristinsson þjálfari Fram um Gustav Dahl.
Knattspyrnudeild Fram óskar Dahl til hamingju með að vera kominn í Dal Draumanna.
Stöðutaflan

L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir