Fotbolti.net
15.08.26 - 16:25
Snæbjört Pálsdóttir

Byrjunarlið FH og Breiðabliks í toppslagnum

Byrjunarlið FH og Breiðabliks í toppslagnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Núna klukkan 17:00 hefst toppbaráttuslagurinn í Bestu deild kvenna. FH tekur þá á móti Breiðablik í 15. umferðinni á Kaplakrikavelli. Liðin eru í 1. og 2. sætinu og sigur í dag gerir mikið til að koma öðru hvoru liðinu nær Íslandsmeistaratitlinum.

Fyrri leikur liðanna í sumar endaði með 2-3 sigri FH á Eikarvellinum. 

Lestu um leikinn: FH 0 - 1 Breiðablik

Bræðurnir Guðni og Hlynur gera þrjár breytingar á sínu liði frá 4-6 sigrinum á Fram í síðasta leik. Aldís kemur aftur í markið og þá spila Ásdís Karen og Hildur Katrín sína fyrstu leiki fyrir FH í sumar. Ásdís Karen kom til FH á dögunum frá Braga í Portúgal og þá var Hildur Katrín kölluð aftur úr láni frá Grindavík/Njarðvík þar sem hún hefur verið í stóru hlutverki. 

Ian Jeffs þjálfari Breiðabliks gerir einnig eina breytingu á sínu liði frá 1-0 sigri á Grindavík/Njarðvík en inn í liðið fyrir Sunnu Rún kemur Edith. 

 

Byrjunarlið FH

  • 1. Aldís Guðlaugsdóttir (m)
  • 3. Anna Heiða Óskarsdóttir
  • 8. Helena Maree Errington
  • 10. Ída Marín Hermannsdóttir
  • 13. Deja Jaylyn Sandoval
  • 15. Hrönn Haraldsdóttir
  • 19. Hildur Katrín Snorradóttir
  • 20. Ásdís Karen Halldórsdóttir
  • 29. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (f)
  • 37. Jónína Linnet
  • 41. Ingibjörg Magnúsdóttir

Byrjunarlið Breiðablik

  • 12. Taylor Kane (m)
  • 3. Elísa Viðarsdóttir
  • 4. Elín Helena Karlsdóttir
  • 7. Agla María Albertsdóttir (f)
  • 8. Katelyn Duong
  • 14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
  • 15. Edith Kristín Kristjánsdóttir
  • 16. Þórdís Elva Ágústsdóttir
  • 17. Karitas Tómasdóttir
  • 18. Kristín Dís Árnadóttir
  • 19. Líf Joostdóttir van Bemmel
Byrjunarlið FH og Breiðabliks í toppslagnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið FH og Breiðabliks í toppslagnum
Canon

Mynd: FH

Byrjunarlið FH og Breiðabliks í toppslagnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.