Fotbolti.net
15.08.26 - 17:00
Viktor Ingi Valgarðsson

Viðar Örn með fimm mörk og stoðsendingu: Bara einn af þeim dögum

Auglýsing
Viðar Örn Kjartansson, leikmaður Selfoss

Viðar Örn Kjartansson, leikmaður Selfoss

Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Það var alvöru veisla sem fór fram á JÁVERK-vellinum á Selfossi í dag. Heimalið Selfoss tók á móti Fjölnir í 17.umferð 2.deild karla. Fjölnir komust 2-0 yfir en Selfoss liðið snéri því við og fóru 3-2 yfir í hálfleik. Einstefnan hélt síðan áfram í seinni og Selfoss fór með 6-2 sigur af hólmi. Viðar Örn Kjartansson átti vægast sagt stórleik. Fimm mörk og stoðsending, en hann var kominn með þrennuna í hálfleik.

Lestu um leikinn: Selfoss 6 - 2 Fjölnir

Það var ekki annað hægt en að fá að heyra orðið í Viðari eftir leik. Aðspurður hvað hafi hreinlega gerst hafði Viðar Örn þetta að segja: „Ég veit það í rauninni ekki, þeir komast í 2-0 og þeir eru fínir fram á við, mér fannst við ekkert lélegir. Við héldum bara áfram, reyndum að spila og það var nægur tími eftir. Komumst í gang með aukaspyrnunni (sem hann skoraði sjálfur úr). Síðan fannst mér við bara taka öll völd á vellinum, bara gjörsamlega."

„Margir í liðinu í dag sem voru stórkostlegir í dag. Áttu sínar bestu frammistöður í sumar og bara hrós á liðsfélagana mína."

„Jújú, ég var góður líka. Gott að skora mörg mörk, fóru flest færi inn hjá mér. Bara einn af þeim dögum."

Viðar Örn var kominn með fjögur mörk þegar hann lagði upp á Ívan Breka en færið bauð alveg upp á að Viðar myndi skjóta sjálfur. „Ég heyrði öskrið, hann öskraði svo mikið. Hann var held ég hjá bekknum okkar þegar hann byrjaði að öskra. Þannig ég hugsaði að ég verð að gefa hann. Svo var hann ógeðslega lengi á leiðinni þannig ég þurfti að bíða alveg. Það var gott að hann fékk mark við höfum virkilega haft á honum að halda í síðustu leikjum."

„Koma tilbaka úr 2-0 móti Fjölnir sem er sterkt lið og verið flottir undan farið, það er geggjað. Strákarnir frábærir í dag, urðu ekki litlir, bara bættu í. Það er mjög auðvelt að gefast upp eða fara í vitleysu. Gerðum bara nákvæmlega það sem við áttum að gera, búnir að tala um þetta lengi og liðið búið að leggja hart á sig. Það eru einn og einn lélegur leikur sem maður getur nefnt út tímabilið en það er aðalega reynsluleysi og klaufaskapur sem lætur okkur ekki hafa fleiri stig. Sífeldur uppgangur í liðinu og ég er rosalega spenntur fyrir framhaldinu."

Viðar Örn er kominn með 19mörk í deildinni og 5mörk í Gatorade bikarnum. Markahæstur í báðum keppnum. „Ég er búin að æfa drullu vel síðan í desember. Lagt mig hart fram í öllu sem ég geri og maður uppsker oft eftir því. Maður telur upp úr hattinum eftir seasonið. Aðalatriðið er að komast í deildina fyrir ofan, ég hjálpa liðinu með því að skora mörk og er gríðarlega sáttur með mitt framlag so far. Eigum fimm leiki eftir og síðan erum við í bikarnum."

Næsti leikur Selfoss er gegn Kára en þeir eru í 3.sæti með þremur stigum færri en Selfoss sem er í 2.sæti. „Það er bara sama mentality og í dag, getum ekki slakað á. Ef að við spilum svona, bara í öllu þá hef ég engar áhyggjur af neinu. En síðan getum við droppað á lægra plan og við erum alveg búnir að gera það á tímabilinu. Þá erum við ekki gott lið."


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.