Fotbolti.net
15.09.26 - 19:54
Sigurjón Árni Torfason
Gatorade bikar Fótbolti.net

Sigurður Brynjólfs: Ég get ekki kvartað

Auglýsing
Gömul mynd af Sigurði Brynjólfssyni (Til hægri) ásamt Þórhalli Dan.

Gömul mynd af Sigurði Brynjólfssyni (Til hægri) ásamt Þórhalli Dan.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Álftanes heimsótti Selfoss á JÁVERK-vellinum í undanúrslitum Fótbolta.net-bikarsins. Álftanes byrjaði leikinn vel, en brekkan varð brattari eftir að Hilmir Ingi, leikmaður Álftaness, var rekinn af velli eftir 26 mínútna leik. Fótbolti.net var að sjálfsögðu mætt á Selfoss og heyrði í Sigurði eftir leik.
Lestu um leikinn: Selfoss 5 - 0 Álftanes
„Bara stoltur af mínu liði, að vera kominn svona langt í þessari keppni. Stoltur af frábæru seasoni. Og bara stoltur af því hvernig þeir brugðust við eftir að lenda manni færri á hvað, 25. mínútu. Svona fram að því og alveg stóran part af fyrri hálfleik þá fannst mér bara vera jafnræði með liðunum og svo sá maður að þeir gera þarna 2-0 og svo byrjar svona mannamunurinn að telja. Og eins og oft í fótbolta þá eru bara síðustu mínúturnar erfiðar."

Álftanes hefur átt stórkostlegt tímabil. Þeir unnu 4. deildina með yfirburðum og komust í undanúrslit Fótbolta.net-bikarsins, þar sem þeir unnu Fjölni og Dalvík/Reyni á leið sinni.

„Þetta er frábært season. Ég held þetta sé, ég held við séum búin að spila 31 eða 32 KSÍ-leiki á árinu og erum búin að vinna 29 og tapa þremur þannig að ég get ekki kvartað."

Sagði Sigurður við blaðamann Fótbolta.net eftir leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.