Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 15. október 2020 22:00
Victor Pálsson
Mourinho gefur í skyn að Bale gæti spilað
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, hefur gefið í skyn að Gareth Bale gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið um helgina.

Bale er mættur aftur til Tottenham frá Real Madrid en hann gerði eins árs langan lánssamning við enska liðið.

Meiðsli hafa sett strik í reikning Bale síðan hann kom til Englands en nú styttist í að Mourinho geti valið hann í liðið.

Möguleiki er á að það verði um helgina þegar Tottenham spilar við West Ham í ensku úrvalsdeildinni.

„Liðið er það sem skiptir mestu máli og Gareth er hér til að hjálpa. Á sama tíma þá þurfum við að passa hann," sagði Mourinho.

„Ákvörðunin sem verður tekin verður tekin fyrir liðið en líka fyrir hann. Það er mjög mikilvægt fyrir hann að eiga gott tímabil með okkur á þessum stað á ferlinum."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner