Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 15. október 2020 23:30
Victor Pálsson
Nýja vonarstjarna Man Utd ánægð með ummæli Cavani
Pellistri til vinstri.
Pellistri til vinstri.
Mynd: Getty Images
Facundo Pellistri, nýr leikmaður Manchester United, var hæstánægður með ummæli Edinson Cavani sem hann lét falla á dögunum.

Cavani hrósaði þar landa sínum unga Pellistri en hann var áður á mála hjá Penarol í heimalandinu, Úrúgvæ.

Cavani hefur lengi verið einn besti leikmaður Úrúgvæ en hann samdi við United á svipuðum tíma og Pellistri.

Þeir munu því leika saman með félaginu á þessu tímabili en búast má við því að Cavani fá aðeins fleiri mínútur en Pellistri sem er 18 ára gamall.

„Það var ótrúlegt að hlusta á þetta. Það er frábært að heyra svona ummæli frá leikmönnum á borð við Cavani," sagði Pellistri.

„Ég er hæstánægður með að hann hafi sagt þetta um mig. Ég vona að hann komi hingað sem fyrst og held að hann muni gera frábæra hluti."

Athugasemdir
banner
banner