17.09.26 - 16:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrirliði Hauka: Rosalegur uppgangur í félaginu
Ætlum að gera vel á flottasta velli landsins
Auglýsing

Fyrirliði Hauka

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daði Snær og Aron Fannar með Fótbolta.net bikarinn.

Mynd: KSÍ - Óskar Örn Guðbrandsson

Fyrirliði Hauka

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við erum mjög spenntir, mikil tilhlökkun. Við erum með gríðarlega gott lið og ég held þetta verði hörkuleikur gegn Selfossi á morgun," segir Daði Snær Ingason sem er fyrirliði Hauka.
Haukar og Selfoss mætast á Laugardalsvelli á morgun í úrslitaleik Gatorade bikars Fótbolta.net. Leikurinn hefst klukkan 19:00.

TENGT EFNI
Guðjón Pétur: Vonandi klárum við þessa heilögu þrennu
„Við reynum að fylla stúkuna, það hefur verið mjög góður stuðningur í sumar og ég held hún verði full af fólki í rauðu."
„Auðvitað verður eitthvað stress í mönnum en við erum aðallega spenntir fyrir því að koma hérna og vera á flottasta velli Íslands. Við ætlum að gera þetta vel."
„Það er búinn að vera rosalegur uppgangur í félaginu, bæði innan sem utan vallar. Stuðningurinn við okkur er búinn að vera gríðarlegur og svo höfum við fengið nokkra reynslubolta inn í liðið sem ég held að hafa gefið okkur auka innspýtingu. Þeir kunna að vinna," segir Daði Snær um tímabilið í ár.