Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 15. október 2021 19:12
Brynjar Ingi Erluson
Stefán Teitur magnaður í október - Skoraði annan leikinn í röð
Stefán Teitur hefur verið að gera frábæra hluti í þessum mánuði
Stefán Teitur hefur verið að gera frábæra hluti í þessum mánuði
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefán Teitur Þórðarson heldur áfram að gera glimrandi góða hluti í Danmörku en hann skoraði eina mark Silkeborg í 1-1 jafnteflinu gegn Viborg í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Mark Stefáns kom á 64. mínútu leiksins og annað mark hans á tímabilinu. Tveimur mínútum síðar jöfnuðu heimamenn og lokatölur því 1-1.

Þetta var annar leikurinn í röð sem hann skorar með Silkeborg en hann gerði þriðja mark liðsins í 4-1 sigri á Nordsjælland. Hann er því kominn með tvö mörk og tvær stoðsendingar í tíu leikjum.

Síðustu vikur hafa verið honum verulega góðar en hann gerði einnig fyrsta mark Íslands í 4-0 sigrinum á Liechtenstein í undankeppni HM í fyrsta keppnisleiknum.

Silkeborg er í 4. sæti dönsku deildarinnar með 18 stig.
Athugasemdir
banner
banner