Fotbolti.net
15.10.26 - 10:42
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

„Slökkviliðsmaðurinn“ nýr þjálfari Þóris Jóhanns

Slökkviliðsmaðurinn hefur verið kallaður út í Feneyjum

Slökkviliðsmaðurinn hefur verið kallaður út í Feneyjum

Canon

Mynd: EPA

Ítalska félagið Venezia hefur ráðið Davide Nicola sem nýjan stjóra en hann hefur mikla reynslu af því að bjarga liðum út úr vandræðum, fyrir það hefur hann fengið viðurnefnið „Slökkviliðsmaðurinn“.

Róðurinn hefur verið þungur hjá Venezia en ítalska félagið rak þjálfarann Giovanni Stroppa eftir að hafa tapað fyrstu sex deildarleikjum sínum.

Þórir Jóhann Helgason spilar með Venezia og hefur komið við sögu í þremur deildarleikjum á tímabilinu.

Stroppa var fjórði stjórinn í ítölsku A-deildinni sem var rekinn á þessu tímabili. Fabio Grosso (Fiorentina), Domenico Tedesco (Bologna) og Carlos Cuesta (Parma) höfðu áður verið reknir. Næsti leikur Venezia er heimaleikur gegn Napoli á laugardaginn.
Stjóri Þóris í Feneyjum látinn taka pokann sinn
TENGT EFNI

Stjóri Þóris í Feneyjum látinn taka pokann sinn

Nicola er mættur til að bjarga málum.

Hann náði á sögulegan hátt að bjarga Crotone uppi og kom síðan Genoa úr neðsta sæti deildarinnar upp í öruggt sæti. Hann endurtók þetta bragð hjá Torino og Salernitana. Hann hélt einnig Empoli uppi eftir að hafa komið í janúar 2024 og leiddi Cagliari í 15. sæti tímabilið 2024-25.

Hann var síðast hjá Cremonese en það endaði með uppsögn í mars, liðið var þá í fallsæti.
Þórir Jóhann Helgason.

Þórir Jóhann Helgason.

Canon

Mynd: Venezia FC

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.