15.10.26 - 11:04
Elvar Geir Magnússon
Sonur Pochettino spilar sögulegan leik fyrir andorrskan fótbolta

Feðgar á ferð.

Mynd: Spurs

Feðgar á ferð.

Mynd: Spurs
Meðal Evrópuleikja dagsins er viðureign Mjällby og Inter Club d'Escaldes sem fram fer í Svíþjóð.
Inter Club d'Escaldes verður þar fyrsta liðið frá Andorra til að keppa í riðla- eða deildarkeppni í Evrópukeppni.
Meðal leikmanna andorrska liðsins Inter er Maurizio Pochettino, sonur Mauricio Pochettino landsliðsþjálfara Bandaríkjanna.

TENGT EFNI
Sambandsdeildin í dag - Margir Íslendingar í eldlínunni
„Maður hefur ekki meðtekið þetta almennilega. Fyrir svona lítið land, svona litla deild sem er ekki hátt skrifuð í Evrópu. Þetta er draumur að rætast," segir hinn 25 ára gamli Pochettino í samtali við BBC.
Í ágúst náði Inter að tryggja sér sæti í Sambandsdeildinni með því að vinna Drita frá Kósovó eftir vítakeppni. Mauricio Pochettino var meðal áhorfenda og sá son sinn skora úr sinni spyrnu.
Maurizio Pochettino var í unglingaliði Tottenham á sínum tíma, þegar pabbi hans var þar stjóri. Hann gekk svo í raðir Watford áður en hann hélt til Gimnàstic de Tarragona í Katalóníu, síðan til Ibiza og loks til Inter Club d'Escaldes.

NewsLatest The Andorran club making history with a Pochettino in the team trendingnews https://t.co/Iux628gCTD
— Football Buzz (@footballBuzzz) October 15, 2026