Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 15. nóvember 2019 15:00
Magnús Már Einarsson
Bale: Spenntari fyrir leikjum með Wales en Real Madrid
Bale í landsleik með Wales.
Bale í landsleik með Wales.
Mynd: Getty Images
Gareth Bale segist vera spenntari fyrir leiki með landsliði Wales heldur en leiki með Real Madrid. Bale hefur ekki spilað með Real Madrid síðan 5. október vegna meiðsla en hann hefur æft með landsliði Wales í vikunni fyrir leiki gegn Azerbaijan og Ungverjalandi.

Bale hefur legið undir gagnrýni hjá Real og hann segist vera mun spenntari fyrir landsleiki en leiki á Spáni.

„Ég er klárlega spenntari fyrir því að spila með Wales. Ég hef spilað með flestum af eldri leikmönnunum þar síðan við vorum í U17 landsliðinu," sagði Bale.

„Þetta er eins og að spila með vinum þínum úti í garði á sunnudegi."

„Hjá Wales tala ég mitt tungumál og líður mun betur. Það breytir samt ekki því sem ég geri inni á vellinum. Ég legg mig alltaf 100% fram á vellinum, sama hvar ég er. Ég reyni það alltaf."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner