Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 15. nóvember 2020 15:30
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Grealish byrjar sinn fyrsta keppnisleik í kvöld
Mynd: Getty Images
Sky Sports hefur heimildir fyrir því að Jack Grealish, miðjumaður Aston Villa, muni vera í byrjunarliði A-landsliðs Englendinga í fyrsta sinn í keppnisleik er liðið mætir Belgíu í Þjóðadeildinni í kvöld.

Englendingar unnu fyrri viðureign liðanna í Belgíu en töpuðu svo fyrir Dönum og er staðan því ansi jöfn í toppbaráttu riðilsins. Ísland er stigalaust á botni riðilsins.

Grealish hefur spilað þrisvar sinnum fyrir enska landsliðið, tvisvar var hann í byrjunarliðinu í æfingaleikjum í haust og svo fékk hann að sprikla síðasta stundarfjórðunginn í markalausu jafntefli í Danmörku í september.

Sky greinir frá því að Grealish muni líklegast byrja á vinstri kanti í leikkerfi Gareth Southgate til að taka ekki stöðu Mason Mount í liðinu.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner