Fotbolti.net
15.11.20 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

U21 í dag - Úrslitaleikur á Írlandi

U21 í dag - Úrslitaleikur á Írlandi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

U21 landslið karla á úrslitaleik á Írlandi í dag þar sem liðin eru í harðri baráttu um toppsæti riðilsins.
Ísland og Írland eru partur af gríðarlega jöfnum undanriðli en Ítalir sitja á toppinum sem stendur eftir sigur á Íslandi á fimmtudaginn.

Strákarnir efnilegu eru núna komnir til Írlands þar sem ekkert dugar nema sigur. Írar eru með 16 stig eftir 8 umferðir, Ísland er með 15 stig.

Svíar eru einnig með 15 stig og eiga eftir að spila við Ítali.

Staðan í riðlinum:
1. Ítalía - 19 stig 19-4
2. Írland - 16 stig 12-5
3. Svíþjóð - 15 stig 27-8
4. Ísland - 15 stig 14-11
5. Armenía - 3 stig 4-27
6. Lúxemborg - 3 stig 2-23

Leikir dagsins:
12:30 Írland U21 - Ísland U21
16:30 Lúxemborg U21 - Ítalía U21
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.