Söngkonan Shakira gaf í síðustu viku út lag sem hefur notið mikilla vinsælda.
Textinn í laginu er mjög svo áhugaverður en Shakira er augljóslega þar að syngja til Gerard Pique, fyrrum eiginmanns síns.
Shakira og Pique opinberuðu ástarsamband sitt árið 2011 en þau kynntust í gegnum vinnu við HM í Suður-Afríku árið áður. Parið hætti saman í sumar eftir að hún komst að framhjáhaldi spænska fótboltamannsins.
Pique er kominn með nýja kærustu en í nýju lagi sínu sendir Shakira sterk skilaboð á sinn fyrrum eiginmann. Hún segir meðal annars að hann hafi skipt út Ferrari glæsibifreið fyrir Renault Twingo, sem er kannski ekki alveg eins glæsilegur bíll.
Pique hætti í fótbolta fyrir stuttu síðan eftir farsælan feril með Barcelona og spænska landsliðinu, en hann hefur svarað fyrrum eiginkonu sinni því hann sást keyra Renault Twingo í gær. Myndband af því má sjá hér að neðan.
El presi @3gerardpique acaba de llegar pic.twitter.com/o5ZFeiENaf
— Kings League InfoJobs (@KingsLeague) January 15, 2023
Athugasemdir