16.02.21 - 14:22
Elvar Geir Magnússon
De Bruyne mættur aftur til æfinga - Gundogan ekki með á morgun

Kevin De Bruyne.

Mynd: Getty Images

Kevin De Bruyne.

Mynd: Getty Images
Góðar fréttir fyrir Manchester City.
Belginn Kevin De Bruyne er farinn að æfa að fullum krafti á nýjan leik.
Þessi magnaði leikmaður hefur verið fjarverandi í næstum mánuð vegna meiðsla aftan í læri.
Belginn Kevin De Bruyne er farinn að æfa að fullum krafti á nýjan leik.
Þessi magnaði leikmaður hefur verið fjarverandi í næstum mánuð vegna meiðsla aftan í læri.
„Hann er orðinn mun betri. Í dag þá æfði hann allan tímann með hópnum. Þetta er mun betra," segir Guardiola.
Það er þó ekki talið líklegt að hann verði í hópnum annað kvöld þegar City mætir Everton í ensku úrvalsdeildinni.

Guardiola hefur staðfest að Sergio Aguero verði á bekknum á morgun og þá er búist við því að Ilkay Gundogan missi af leiknum en hann fór af velli gegn Tottenham á laugardag.
„Ilkay er orðinn betri en ég held að hann verði ekki með á morgun," segir Guardiola en Gundogan hefur verið frábær á tímabilinu og var valinn besti leikmaður janúarmánaðar.
Manchester City er á rosalegu skriði og er að stinga af í ensku úrvalsdeildinni.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 8 | +11 | 21 |
| 2 | Arsenal | 8 | +8 | 21 |
| 3 | Brighton | 8 | +16 | 16 |
| 4 | Liverpool | 8 | +3 | 15 |
| 5 | Chelsea | 8 | +2 | 13 |
| 6 | Brentford | 8 | +5 | 11 |
| 7 | Leeds | 8 | +3 | 11 |
| 8 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 9 | Aston Villa | 8 | -3 | 11 |
| 10 | Hull City | 8 | +1 | 10 |
| 11 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 12 | Ipswich Town | 8 | -4 | 10 |
| 13 | Bournemouth | 8 | -1 | 9 |
| 14 | Tottenham | 8 | -2 | 9 |
| 15 | Fulham | 8 | -2 | 8 |
| 16 | Man Utd | 8 | -3 | 7 |
| 17 | Crystal Palace | 8 | -10 | 7 |
| 18 | Nott. Forest | 8 | -4 | 6 |
| 19 | Coventry | 8 | -9 | 6 |
| 20 | Sunderland | 8 | -8 | 5 |