Fotbolti.net
16.04.21 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Sheffield United gæti fallið um helgina

Sheffield United gæti fallið um helgina
Canon

Mynd: Getty Images

Fall Sheffield United úr ensku úrvalsdeildinni gæti verið staðfest um helgina.

Sheffield United er með 14 stig á botni ensku úrvalsdeildarinnar fyrir leikinn gegn Wolves um helgina, 18 stigum á eftir Newcastle sem er í 17. sæti.

Ef liðið Sheffield United tapar gegn Úlfunum og Newcastle nær í stig gegn West Ham þá er fallið staðfest.
Sheffield United kom skemmtilega á óvart þegar liðið endaði í níunda sæti í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Í vetur hefur allt gengið á afturfótunum og liðið er nú einungis einu tapi frá jöfnun á félagsmeti yfir flesta tapleiki á einu tímabili. Paul Heckingbottom stýrir Sheffield United þessa dagana en hann tók við liðinu af Chris Wilder á dögunum.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City9+1021
2Arsenal8+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool8+315
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.