Fotbolti.net
01.11.26 - 13:40
Brynjar Ingi Erluson

Ótrúleg byrjun Cecilíu á tímabilinu

Cecilía hefur farið á kostum í marki Inter

Cecilía hefur farið á kostum í marki Inter

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kvennaboltinn
Cecilía Rán Rúnarsdóttir hefur farið á kostum á Ítalíu á tímabilinu og hefur enn ekki fengið á sig mark í fyrstu fimm umferðum deildarinnar.
Markvörðurinn var enn á ný örugg á milli stanganna þegar Inter vann sannfærandi 3-0 sigur á Lazio í dag.

Cecilía fékk 7,8 í einkunn hjá FlashScore og varði þrjú skot samkvæmt tölfræði miðilsins, auk þess að vera örugg í sendingum sínum.

Hún hefur þar með haldið hreinu í öllum fimm deildarleikjum sínum á tímabilinu, en það er ekki allt því hún hefur einnig haldið hreinu í tveimur bikarleikjum og einum leik í Meistaradeildinni.

Miðað við þetta gengi er Cecilía á góðri leið með að bæta eigið met frá tímabilinu 2024-2025, þegar hún hélt hreinu í tíu deildarleikjum og var jafnframt valin besti markvörður ársins.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom einnig við sögu hjá Inter, en hún kom inn af varamannabekknum í síðari hálfleik.

Inter er á toppi deildarinnar með þrettán stig, einu stigi á undan ríkjandi meisturum Roma, sem eiga þó leik til góða.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.