Fotbolti.net
01.11.26 - 13:46
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Ítalía: Þórir Jóhann byrjaði í tapi gegn Como

Þórir var í byrjunarliðinu annan leikinn í röð

Þórir var í byrjunarliðinu annan leikinn í röð

Canon

Mynd: Venezia FC

Como 1 - 0 Venezia
1-0 Lucas Da Cunha ('43 , víti)
Þórir Jóhann Helgason og félagar hans í Venezia töpuðu 1-0 fyrir Como í Seríu A á Ítalíu í dag.

Landsliðsmaðurinn var í byrjunarliði Venezia annan leikinn í röð eftir að hafa sýnt nokkuð góða frammistöðu gegn Inter í síðasta leik.

Venezia var að mestu í varnarhlutverki í fyrri hálfleik, en gestirnir töldu sig hafa fengið vítaspyrnu þegar boltinn fór í hönd Luis Milla. Dómurinn var hins vegar dreginn til baka eftir skoðun VAR og um fimmtán mínútum síðar voru það heimamenn sem fengu vítaspyrnu þegar Anastasios Douvikas var felldur innan teigs.

Lucas Da Cunha fór á punktinn og skoraði það sem reyndist sigurmark leiksins.

Með sigrinum fór Como upp í fjórða sæti deildarinnar með 23 stig, en Venezia hefur nú tapað tveimur leikjum í röð og situr á botninum með aðeins þrjú stig.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1526
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+818
7Napoli9+614
8Juventus9+114
9Bologna10+114
10Torino10014
11Cagliari10-514
12Atalanta9-111
13Genoa9-510
14Lecce9-99
15Sassuolo9-88
16Monza10-77
17Fiorentina9-105
18Parma9-105
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.