Það er ljóst hvaða lið spila til úrslita í umspilinu í Championship-deildinni um sæti í ensku úrvalsdeildinni. Það á enn eftir að koma í ljós hvaða lið spila til úrslita í umspilinu í C-deildinni á Englandi.
Í dag mætast fyrrum úrvalsdeildarfélögin Sunderland og Portsmouth í seinni leik sínum.
Fyrri leikurinn á heimavelli Sunderland endaði með 1-0 sigri Sunderland. Í kvöld verður leikið á Fratton Park í Portsmouth og getur allt gerst.
Í hinu einvíginu eigast við Charlton og Doncaster. Charlton er þar með 2-1 forystu og á heimaleik á föstudaginn.
Leikurinn í kvöld hefst klukkan 18:45, en Luton og Barnsley eru nú þegar komin upp í Championship-deildina.
Leikur kvöldsins:
18:45 Portsmouth - Sunderland (0-1)
We are going there to win the game. Winning the game gets us to Wembley. #NotDoneYet pic.twitter.com/6M2ST2MU1U
— Sunderland AFC (@SunderlandAFC) May 15, 2019
Athugasemdir