12.09.26 - 17:20
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild kvenna: Fjölnir fagnar titlinum - Fylkir í Lengjudeild

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fylkir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lokaumferð í úrslitakeppni 2. deildar kvenna er lokið og tryggði Fjölnir sér 2. deildartitilinn eftir fjörugt sex marka jafntefli gegn Vestra.
Fjölni nægði jafntefli til að tryggja toppsætið en tap hefði þýtt að enda í öðru sæti.
Fjölnisstelpur komust í tveggja marka forystu í fjörugum slag og var staðan 2-0 þar til Ísfirðingar snéru stöðunni sér í hag í síðari hálfleik.
Gestirnir skoruðu þrjú mörk á sextán mínútna kafla áður en Oliwia Bucko gerði mikilvægt jöfnunarmark fyrir Fjölni á 82. mínútu. Lokatölur 3-3.
Fjölnir endar með 37 stig, einu stigi fyrir ofan Fylki sem lagði Einherja að velli í dag. Birna Kristín Eiríksdóttir og Marija Radojicic sáu um markaskorunina.
Fjölnir og Fylkir fara því saman upp um deild, á meðan Einherji og Vestri sitja eftir í 2. deildinni eftir æsispennandi toppbaráttu.
Fylkir 2 - 1 Einherji
1-0 Birna Kristín Eiríksdóttir ('6 )
1-1 Claudia Maria Daga Merino ('51 )
2-1 Marija Radojicic ('62 )
Fjölnir 3 - 3 Vestri
1-0 Tinna Sól Þórsdóttir ('3 )
2-0 Marta Björgvinsdóttir ('18 )
2-1 Jayla Finley Ponce ('62 )
2-2 Freyja Rún Atladóttir ('73 )
2-3 Friðrikka Líney Sigurðardóttir ('78 )
3-3 Oliwia Bucko ('82 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Fjölnir | 17 | +49 | 37 |
| 2 | Fylkir | 17 | +66 | 36 |
| 3 | Einherji | 17 | +49 | 34 |
| 4 | Vestri | 17 | +36 | 34 |